- Nánari upplýsingar
Shelly 1 Gen4 er fyrirferðarlítið, snjallt 1-rása stýrigengi með spennulausum (dry contact) útgangi. Það hentar vel til stýringar á lýsingu, tækjum, hliðum, bílskúrshurðum og öðrum rafbúnaði.
Tækið styður Wi-Fi, Zigbee, Bluetooth og Matter og er því auðvelt að samþætta við fjölbreytt snjallheimiliskerfi. Shelly 1 Gen4 býður einnig upp á tímastýringar, senur og fjölbreytta möguleika fyrir sjálfvirkni.
Helstu eiginleikar:
- 1-rása stýrigengi
- Spennulaus (dry contact) útgangur
- Allt að 16 A / 240 V AC
- Wi-Fi, Zigbee, Bluetooth og Matter
- Hentar fyrir lýsingu, tæki, hlið og bílskúrshurðir
- Styður tímastýringar, senur og sjálfvirkni
- Fyrirferðarlítil hönnun fyrir uppsetningu í dós