- Nánari upplýsingar
Shelly 1 Mini Gen4 er einstaklega fyrirferðarlítið snjallt 1-rása stýrigengi með spennulausum (dry contact) útgangi. Smæðin gerir það sérstaklega hentugt til uppsetningar bak við rofa eða í tengidós þar sem pláss er takmarkað.
Tækið styður Wi-Fi, Zigbee, Bluetooth og Matter og hentar meðal annars til stýringar á lýsingu, hliðum, bílskúrshurðum og öðrum rafbúnaði.
Helstu eiginleikar:
- 1-rása stýrigengi
- Spennulaus (dry contact) útgangur
- Allt að 8 A / 240 V AC
- Wi-Fi, Zigbee, Bluetooth og Matter
- Hentar vel þar sem lítið pláss er í dós
- Styður tímastýringar, senur og sjálfvirkni
- Stærð aðeins 29 × 34 × 16 mm