Jafnlaunastefna Ískrafts
Ískarft leggur áherslu á að vera vinnustaður þar sem hver einstaklingur er metinn að verðleikum og að greidd skuli jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf óháð kyni, uppruna eða öðrum ómálefnalegum þáttum. Ískarft tryggir jöfn tækifæri til starfsþróunar og fræðslu.
Jafnlaunakerfið nær til alls starfsfólks Húsasmiðjunnar og er órjúfanlegur hluti af launastefnu þess. Framkvæmdastjórn Ískarft ber ábyrgð á jafnlaunakerfinu, innleiðingu, skjalfestingu og viðhaldi í samræmi við Jafnlaunastaðal ÍST85:2012. Framkvæmdastjórn skuldbindur sig til að viðhalda stöðugum umbótum og gera áætlun um reglulegt eftirlit með virkni jafnlaunakerfisins og bregðast við þegar það á við.
Tryggt er að jafnlaunakerfið sé í samræmi við lagalegar kröfur nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Jafnlaunastefnan er kynnt starfsmönnum og gerð aðgengileg almenningi á heimasíðu Ískarft.
Samþykkt af framkvæmdastjórn í desember 2021