ÍSKRAFT var stofnað af Herborgu Halldórsdóttur og Hreggviði Þorgeirssyni í nóvember 1975.
Í upphafi einskorðaði fyrirtækið sig við útvegun raflagnaefnis til rafveitna, ekki síst til RARIK -
sem þá vann að lagningu Byggðalínu.
ÍSKRAFT útvegaði í þetta umfangsmikla verkefni, tengivirki, línuvír, einangra, spennubreyta og margt fleira.
Árið 1980 jukust umsvifin á hinum almenna rafiðnaðarmarkaði og hefur síðan verið unnið stöðugt að útvíkkun starfseminnar á því sviði.
1980Í árslok 1987 sameinuðust ÍSKRAFT og Ásel hf. í Garðabæ og jókst þá vöruúrvalið á sviði töflubúnaðar mjög.
1987ÍSKRAFT var í upphafi rekið að Sólheimum 29-33 í Reykjavík en árið 1997 keypti ÍSKRAFT húsnæði að Smiðjuvegi 5 í Kópavogi þar sem reksturinn er í dag.
1997Árið 1999 var stofnað útibú á Akureyri sem er til húsa að Hjalteyrargötu 4.
Þar eru 5 starfsmenn og þjóna Norðurlandi frá Sauðárkróki til Húsavíkur.
Í október árið 1999 keypti Húsasmiðjan ÍSKRAFT og hefur sú breyting eflt starfsemina enn frekar með auknu vöruúrvali og þjónustu við viðskiptavini okkar.
1999Í júní árið 2000 var starfsemi perudeildar H.G.Guðjónssonar ehf. sameinuð ÍSKRAFT og í ársbyrjun 2001 voru lampadeildir Árvíkur ehf. og Seguls ehf. sameinaðar ÍSKRAFT.
Þessar breytingar juku stórlega úrval ljósapera, inni- og útilampa, ljóskastara ásamt siglingaljósum, leitarkösturum og skipalömpum. Starfsemin hefur vaxið jafnt og þétt undanfarin ár og höfum við ríflega 1600m² til umráða í Kópavogi og starfsmenn í Kópavogi eru 26 talsins.
Í júní 2006 var opnað útibú á Egilstöðum og starfa tveir starfsmenn þar
200616. nóvember 2007, opnaði Ískraft útibú á Selfossi og starfa tveir starfsmenn þar
200714 mars 2008 var opnað útibú í Reykjanesbæ og starfa tveir starfsmenn þar
2008Ískraft flytur höfuðstöðvar sínar að Höfðabakka 7 í Reykjavík þar sem starfsemin er í dag.
2023